Medicube
Medicube er suður-kóreskt húðvörumerki sem kom á markað árið 2016. Merkið byggði sig fyrst upp sem svokallað dermocosmetic merki, með áherslu á húðvandamál eins og svitaholur, ójafna áferð, bólur og viðkvæma húð.
Síðar varð Medicube sérstaklega þekkt fyrir að sameina húðvörur og snyrtitækni. AGE-R raftækin, sem komu á markað 2021, urðu stór hluti af velgengni merkisins og hjálpuðu því að vaxa hratt utan Kóreu. Í dag er Medicube þekkt á alþjóðavísu fyrir blöndu af klínískt prófuðum húðvörum, virkum innihaldsefnum og húðumhirðutækjum.
SKIN1004
SKIN1004 er margverðlaunað, ofnæmisprófað og náttúrulegt húðvörumerki frá Suður-Kóreu. Gildi SKIN1004 er að bjóða náttúrulegar og vandaðar húðvörur á sanngjörnu verði. SKIN1004 er stolt af því að vera hreint snyrtivörumerki og hafa hlotið viðurkenningar sem staðfesta það, svo sem GMP framleiðsluvottun, EWG vottun og Cruelty-free og Vegan vottun frá PETA.
Aðalinnhaldsefni SKIN1004 er unnið úr plöntunni Centella Asiatica. SKIN1004 notast við Centella úr ósnortinni náttúru Madagaskar, þar er loftslagið eins hreint og það gerist. Centella frá Madagaskar hefur reynst innihalda sjö sinnum meira magn virkra efna en frá öðrum vaxtarstöðum plöntunnar.
TIRTIR
TIRTIR var stofnað árið 2018 með það að markmiði að mæta þörfum húðarinnar og fagna náttúrulegri fegurð. Frá upphafi hefur vörumerkið lagt áherslu á að hlusta á viðskiptavini og þróa vörur út frá þeirra þörfum.
TIRTIR vakti heimsathygli sem fyrsta kóreska snyrtivörumerkið til að bjóða púðafarða í 40 mismunandi litatónum. Mask Fit Red Cushion hefur síðan orðið ein þekktasta vara merkisins og hjálpað TIRTIR að ná vinsældum langt út fyrir heimalandið.
Mask Fit Red Cushion 17C Porcelain
Mask Fit Red Cushion 17C Porcelain
COSRX
COSRX byrjaði sem lítið kóreskt húðvörumerki en náði fljótt vinsældum utan Asíu þegar forvitnir Bandaríkjamenn og Evrópubúar vildu kynnast „austurlenskum töfrum“ vörumerkisins. Fljótlega eftir að vörurnar voru markaðssettar, tóku húðsérfræðingar fljótt eftir sérstöðu varanna og byrjuðu að notast við vörunar við alls kyns húðmeðferðir.
Áhersla vörumerkisins er að framleiða snyrtivörur með hágæða innihaldsefnum og COSRX hefur skýra stefnu þegar kemur að vali þeirra efna sem notuð eru. Stefnan tryggir að vörurnar uppfylli þær gæðakröfur sem neytandinn gerir til snyrtivara í dag. Það sem meira er, vörurnar eru ekki prófaðar á dýrum og ofnæmisprófaðar í Suður-Kóreu.
Biodance
Við meðferð á brunasárum í andliti eftir bílslys kviknaði hugmyndin, innblásin af vatnsbindingar-plástrum sem eru notaðir við meðferðir á brunasárum. Drifin áfram af forvitni um virkni þeirra leiddu ótal tilraunir til þróunar á hinumfrægu hydrogel möskum Biodance en það er fyrsta varan sem merkið framleiddi.
Mihwa Kim er stofnandi og núverandi framleiðslustjóri Biodance. Hún heldur áfram að þróa hvert einasta vörunúmer og segir það lykilinn að því að verða eitt eftirsóttasta vörumerki heims. Biodance er áfram staðfast í þeirri vegferð að afhjúpa einstakan ljóma heilbrigðrar húðar.