Farðu í vöruupplýsingar
1 5

COSRX

Advanced Snail 96 Mucin Power Essence

Advanced Snail 96 Mucin Power Essence

Vörulýsing
Létt essence sem inniheldur 96% síað næringarríkt sniglaslím sem veitir húðinni langvarandi raka og skilur hana eftir ljómandi. Áhrifin eru margvísleg en þetta essence lýsir dökka bletti, bætir áferð húðarinnar og spornar gegn öldrun. Sniglaslím á margt sameiginlegt með húð mannslíkamans en slímið er ríkt af andoxunarefnum, prótínum og glýkól- og hýalúrónsýru. Sniglaslím hefur verið notað í þúsundir ára til að meðhöndla sár, brunasár og önnur húðvandamál. Það getur einnig hjálpað til við að draga úr bólgum í húð og stuðlað að heilbrigðara útliti húðar þegar við eldumst t.a.m. með því að ýta undir kollagen framleiðslu húðarinnar.

Virkni
Lýsir dökka bletti
Bætir áferð húðarinnar
Róar húðina
Spornar gegn öldrun húðarinnar
Mjög rakagefandi

Fyrir 
Daufa og grófa húð
Dökka bletti og ör
Öldrunareinkenni

Notkun
Eftir að þú hefur notað andlitshreinsi og andlitsvatn skaltu setja lítið magn af vörunni yfir  allt andlitið. Strjúktu léttilega með fingurgómunum til að dreifa vörunni, fylgið síðan eftir  með rakakremi. 

Innihaldsefni
96,3% sníglaslím:
Gefur góðan raka sem fer fljótt inn í húðina.

1,000 ppm sodium hyloronate:
Plumpar húðina og gefur róandi áferð. Lokar inni raka í húðinni.

Skoða allar upplýsingar